Íbúafundur um framkvæmdir við ofanflóðavarnir á Flateyri
23nóv. kl. 17:00-18:30
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Samkomuhúsið á Flateyri
Á fundinum verður farið yfir stöðu verkefnisins, framkvæmdir sem standa yfir og fyrirhuguð næstu skref. Þá gefst íbúum tækifæri til að koma með fyrirspurnir og taka þátt í umræðum.
Á fundinum verða fulltrúar þeirra aðila sem koma að framkvæmdum og hönnun ofanflóðavarna á Flateyri.
- Jóhann Birkir Helgason, Verkís, sem hefur eftirlit með framkvæmdum.
- Dagný Ísafold Kristinsdóttir, Borgarverki, framkvæmdaraðila verksins.
- Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, Landmótun, sem annast landslagshönnun, meðal annars hönnun svæðisins við höfnina.
- Corinna Hoffman, verkefnisstjóri hjá FSRE, tekur þátt í fundinum í gegnum Teams.
- Gísli Steinn Pétursson, Verkís, sem þekkir vel til virkni og hönnunar varnanna.
- Hinrik Jóhannsson, Ofanflóðasjóði
Tilgangur fundarins
- Fara yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir á Flateyri.
- Kynna hvernig verkefnið stendur og hvernig næstu ár líta út.
- Veita íbúum upplýsingar um framvindu verkefnisins og gefa færi á umræðum og fyrirspurnum
Komdu á íbúafund 23. nóvember Kl. 17:00–18:30 í Samkomuhúsinu á Flateyri og fáðu upplýsingar um stöðu verkefnisins, framkvæmdir og næstu skref.
Allir velkomnir.
Fundinum verður streymt:
Er hægt að bæta efnið á síðunni?