Jólakossar - Jólatónleikaröð sönghópsins Kossa

Skrá nýjan viðburð


Vestfirski sönghópurinn Kossar halda litla jólatónleikaröð um Ísafjarðabæ og Bolungarvíkurkaupstað. Sem mótsvar við amstri jólaundirbúningsins vilja Kossarnir færa íbúum og gestum friðsæla stund sem einkennist af kyrrð, kertaljósi og fallegum jólatónum.

Hólskirkja 19.desember 20:00
Þingeyrarkirkja 20.desember 20:00
Flateyrarkirkja 21.desember 20:00
Ísafjarðarkirkja 23.desember 20:00

Miðasala er við Inngang, miðaverð 3.500,-

Tónleikarnir eru styrktir af Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar.

Sönghópinn skipa:

Aron Ottó Jóhannsson, Ásrós Helga Guðmundsdóttir, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Kristín Harpa Jónsdóttir, Sigurður Þorkell Vignir Ómarsson og Svava Rún Steingrímsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?