Kolaport og basar
21-22 nóv.
Ísafjörður
Félagsheimilið Hnífsdal
Kolaport & Basar kvenfélagsins Hvatar
Laugardaginn 21. nóv. kl 14:00 – 17:00
og sunnudaginn 22. nóv. kl 14:00 – 17:00
í Félagsheimilinu í Hnífsdal
Ýmiskonar heimagert góðgæti verður til sölu
m.a. sérrísíld, rúgbrauð, smákökur og piparkökuhús.
Hið margrómaða hnallþóruborð verður á sínum stað.
Auk þess verður mikið af notuðum fatnaði, skóm,
jólaskrauti og húsbúnaði sem selt verður á slikk
Og samkvæmt venju verður hægt að tilla sér niður og
kaupa nýbakaðar vöfflur og heitt súkkulaði á staðnum.
Allur ágóði rennur til góðgerðamála.
Allir velkomnir!
Er hægt að bæta efnið á síðunni?