Opin bók í Edinborgarhúsinu

Skrá nýjan viðburð


Laugardaginn 28. nóvember kl. 17:00 verður bókmenntavakan Opin bók haldin í Edinborgarsal Edinborgarhússins.

Opin bók er árviss viðburður í menningarlífnu á Ísafirði þar sem rithöfundar koma fram og lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt undir lestrinum. Bóksali frá Eymundsson mætir á svæðið.

Fram koma:

Birgir Tjörvi Pétursson, Skuggar af Kili

Guðlaug Jónsdóttir (Didda), Ævintýrapáskar

María Elísabet Bragadóttir, Þúsund barna móðir

Skúli Gautason, Sovétför Sniglabandsins

Örvar Smárason, Það sem við sjáum þegar við lokum augunum

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða

Bæta í dagatal
Er hægt að bæta efnið á síðunni?