Rithöfundarheimsókn: Kristín Svava Tómasdóttir

Skrá nýjan viðburð


Kristín Svava, sagnfræðingur, segir frá bók sinni, Fröken Dúllu, en bókin er ævisaga Jóhönnu Knudsen (1897-1950). Jóhanna er þekktust fyrir störf sín fyrir lögregluna í Reykjavík á árum síðari heimsstyrjaldar en áður hafði hún starfað í mörg ár sem hjúkrunarkona, þar á meðal á sjúkrahúsinu á Ísafirði, þar sem Safnahúsið er nú.

Í bókinni leitast Kristín Svava við að skilja umhverfið sem Jóhanna spratt úr og það sem knúði hana áfram.

Heitt á könnunni og öll velkomin!

Er hægt að bæta efnið á síðunni?