Skapandi laugardagar í Edinborgarhúsinu: Vatnslitanámskeið
21nóv. kl. 13:00-15:00
Ísafjörður
Edinborgarhúsið, Ísafirði
Menningarmiðstöðin Edinborg býður upp á námskeið í vatnslitun laugardaginn 21. nóvember kl. 13-15.
Málaðar verða litlar jólamyndir sem henta t.d. vel sem merkimiðar fyrir jólapakka.
Leiðbeinandi er Gunnar Jónsson, myndlistarmaður.
Námskeiðið er fyrir öll 12 ára og eldri, sem geta viðhaft sjálfstæð vinnubrögð. Þátttaka er ókeypis en hámarksfjöldi er 20 og því nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt.
Viðburðurinn er hluti af Skapandi laugardögum í Edinborgarhúsinu, sem eru styrktir af Ísafjarðarbæ og Barnamenningarsjóði.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?