Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Vestfjörðum

Skrá nýjan viðburð


Fimmtudaginn 29. október halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Vestfjarðarstofu opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vestfjarðarstofu við Suðurgötu 12 á Ísafirði, kl. 11:45 og er opinn öllum.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.

Dagskrá

Staðan í Ísafjarðarbæ

Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur

Tryggvi Magnússon, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS

Mannvirkjaskrá

Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS

Skipulagsmál – helst á döfinni

Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS

Fundarstjóri verður Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu.

Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

https://www.facebook.com/events/2647994712316164

Er hægt að bæta efnið á síðunni?